20 desember 2006
Samningur um þjónustu við fatlaða á Norðurlandi vestra
Nýr þjónustusamningur milli félagsmálaráðuneytis og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra – málefni fatlaðra (SSNV málefni fatlaðra) var staðfestur í gær, þriðjudaginn 19. desember 2006, á Löngumýri í Skagafirði, með undirritun Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra og Adolfs H. Berndsen, formaður SSNV.