05 febrúar 2014
Skaftárhreppur styrktur til kaupa á varmadælu
<p>Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, tilkynnti í dag um þá ákvörðun að veita Skaftárhrepp styrk vegna kaupa sveitarfélagsins á varmadælu til að hita upp Kirkjubæjarskóla,  íþróttahús og sundlaug sveitarfélagsins. Styrkurinn er veittur í samræmi við markmið um endurnýjanlega orku og orkunýtni í skýrslu Alþingis um Græna hagkerfið.</p>