18 september 2023
Árangurstengd fjármögnun háskóla
Háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, kynnti í dag gagngera kerfisbreytingu á fjármögnun háskólanna sem hún segir forsendu þess að íslenskir háskólar geti náð enn betri árangri. Gagnsæi hins nýja fyrirkomulags tryggi það að skólarnir sjái að meiri og betri árangur skili þeim auknu fjármagni.