21 október 2003
Úttekt á varnarviðbúnaðir vegna notkunar eiturefna-, sýkla- og geislavopna
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í morgun tillögu ásamt utanríkisráðherra og heilbrigðisráðherra, um að fela starfshópi embættismanna undir forystu dómsmálaráðuneytis og með aðild utanríkisráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og umhverfisráðuneytis að gera úttekt á varnarviðbúnaði vegna hugsanlegrar notkunar eiturefna-, sýkla- og geislavopna hér á landi.