05 nóvember 2001
Ávarp menntamálaráðherra á málþingi um aðgang að rafrænum tímaritum
Í nýjasta hefti vikuritsins The Economist ritar Peter Drucker, hinn heimsfrægi ráðgjafi um þróun þjóðfélaga og fyrirtækja, um komandi eða næsta samfélag okkar mannanna. Þar segir hann, að hugtökin "þekkingariðnaður", "þekkingarstörf" og "þekkingarstarfsmaður" séu aðeins 40 ára gömul.