27 maí 2011
Hreinsun gengið framar vonum
<h4>Umhverfisráðherra í heimsókn á öskufallssvæðum</h4>
<p>Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti í gær þau svæði sem urðu einna verst úti í öskufallinu í eldgosinu í Grímsvötnum. Með í för var Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, sem veitti leiðsögn og útskýrði áhrif öskufalls á gróður á svæðinu, bæði í eldsumbrotunum nú og í gosinu úr Eyjafjallajökli í fyrra.</p>