27 júní 2007
Verður leiðtogaskóli umferðarfræðslu á höfuðborgarsvæðinu
<p></p>
<p align=justify>Sigfús Grétarsson, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, og Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, rituðu í gær undir samstarfssamning um að skólinn yrði leiðtogaskóli í umferðarfræðslu grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Viðstaddir undirritunina voru Kristján L. Möller samgönguráðherra og Guðbjartur Hannesson, skólastjóri Grundarskóla á Akranesi.</p>
<p></p>