02 október 2015
Samgöngumál og fjarskiptamál meðal umræðuefna á aðalfundi SSA
<p>Almenningssamgöngur og önnur samgöngumál, ljósleiðaramál, umhverfismál og fleira voru meðal umfjöllunarefna á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem nú stendur yfir á Djúpavogi. Fundinum lýkur uppúr hádegi á morgun. Ólöf Nordal innanríkisráðherra ávarpaði fundinn og ræddi meðal annars samgöngumál, eflingu sveitarfélaga og um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.</p>