16 desember 2004
Umhverfisráðherra tilkynnir um aukna þróunaraðstoð á sviði endurnýjanlegrar orku
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra sagði í ræðu á 10. aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í dag að loftslagsvæn tækni, ekki síst í orkumálum, gæti átt stóran þátt í draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og veðurfarsbreytingum af þeirra völdum.