16 júní 2017
Ríkisstjórnin styður menningarkynningu í tengslum við EM kvenna
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra, að verja 6 millj. kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til menningarkynningar í tengslum við Evrópumót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Hollandi dagana 16. júlí til 6. ágúst næstkomandi.