17 mars 2023
Framtíðin svarar á íslensku: Kynningarfundur um máltækni með fulltrúum OpenAI
Menningar-og viðskiptaráðuneytið stendur fyrir opnum kynningarfundi um íslenska máltækni og gervigreind í Grósku, mánudaginn 20. mars kl. 13. Meðal þátttakenda á fundinum verða Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og fulltrúar bandaríska tæknifyrirtækisins OpenAI.