01 desember 2003
Opinber heimsókn Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra til Íran
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund í Teheran með utanríkisráðherra Íran. Á morgun, þriðjudag 2. desember, heldur opinber heimsókn utanríkisráðherra áfram, þar sem hann mun eiga fundi með forseta og sjávarútvegsráðherra Íran.