21 apríl 2012
Utanríkisráðherra og forsætisráðherra Kína ræða jarðhitamál
<p>Össur Skarpéðinsson, utanríkisráðherra, bauð Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, til málstofu um jarðhitamál í Hellisheiðarvirkjun í dag. Wen Jiabao er jarðvísindamaður að mennt og hefur mikinn áhuga á jarðhitamálum og samstarfi við Íslendinga á því sviði. Forsætisráðherrann er staddur hér á landi í opinberri heimsókn.</p>