24 október 2017Jafnvægisvog: Nýtt mælitæki á sviði jafnréttismálaFélags- og jafnréttismálaráðherra og formaður Félags kvenna í atvinnulífinu undirrituðu í gær samstarfssamning um þróun Jafnvægisvogar til að hafa eftirlit með stöðu og þróun kynjajafnvægis í stjórnum íslenskra fyrirtækja.
24 október 2017Rekstur sjúkrahótels á lóð LandspítalaHeilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Landspítala ábyrgð á rekstri nýs 70 rýma sjúkrahótels á lóð spítalans við Hringbraut.
24 október 2017Nr. 581/2017 - Úrskurður Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og endursenda hann til Ungverjalands er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar.
24 október 2017Úrskurður nr. 580/2017<p>Endurupptaka, Alþjóðleg vernd, a-liður 36. gr., sérstakar ástæður, ákvörðun ÚTL felld úr gildi</p>
23 október 2017Norræn samvinna um lyfjamálEfnt hefur verið til samstarfs fjögurra norrænna þjóða um lyfjamál. Þau lönd sem nú þegar taka þátt í starfinu eru Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Ætlunin er að kanna meðal annars möguleika á sameiginlegu útboði við lyfjainnkaup í því skyni að lækka innkaupsverð lyfja.
23 október 2017Stjórnvöld veita 15 milljónum til Róhingja í flóttamannabúðum í BangladessAðbúnaður flóttafólksins í Bangladess er mjög slæmur og mikill skortur á allri mannúðaraðstoð, s.s. skýlum, matvælaaðstoð, hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu.
23 október 2017Heimild til flutnings á hergögnum um íslenskt yfirráðasvæði ekki veittSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu barst hinn 20. október síðastliðinn erindi frá Samgöngustofu varðandi heimild til flutnings á hergögnum um íslenskt yfirráðasvæði. Sneri erindið að beiðni erlends flugrekanda um leyfi stofnunarinnar til að flytja 16 tonn af táragasi frá Kína til Venesúela með viðkomu á Keflavíkurflugvelli fyrir áhafnahvíld.…
23 október 2017Upptökur frá Umhverfisþingi aðgengilegarGóður rómur var gerður að X. Umhverfisþingi sem haldið var í Hörpu sl. föstudag en þar voru loftslagsmál í brennidepli. Nálgast má upptökur frá þinginu á dagskrársíðu þess.
23 október 2017Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2017Umhverfis og auðlindaráðuneytið minnir á að rjúpnaveiðitímabilið hefst föstudaginn 27. október og munu veiðidagar rjúpu í ár verða tólf talsins, sem skiptast á fjórar helgar á tímabilinu 27. október til 19. nóvember 2017. Leyfileg heildarveiði á rjúpum er um 57.000 rjúpur og miðað við fjölda veiðimanna síðasta ár, gera það 5-6 fugla á hvern veiðimann. Sölubann á er rjúpum.
23 október 2017Styrkir til verkefna lausir til umsóknarOpnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og er umsóknarfrestur til kl. 16:00 23. nóvember 2017. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.
23 október 2017Hefja á endurskoðun regluverks um leigubifreiðaaksturSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað starfshóp til að endurskoða regluverk um leigubifreiðaakstur. Hópurinn skili ráðherra rökstuddum tillögum eigi síðar en um miðjan janúar 2018.