18 desember 2017
Fjármögnun aðgerðaáætlunar um máltækni tryggð
Stórt skref í áttina að því að íslenskan verði hluti af stafrænum heimi framtíðarinnar. Fjórða iðnbyltingin er ekki lengur handan við hornið, hún er þegar hafin. Í ljósi þeirra miklu breytinga sem hún hefur í för með sér, þróunar stafrænnar tækni og áhrif hennar á allt okkar umhverfi er grundvallaratriði að lítið málsamfélag eins og Ísland sé þátttakandi í tæknibyltingunni, ekki áhorfandi.