22 apríl 2015
Viðurkenningar í tengslum við Dag umhverfisins
<p>Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, veitti Landspítala í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í 9. bekk í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ útnefndir Varðliðar umhverfisins.</p>