20 nóvember 2019
Katrín Jakobsdóttir tók þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga og í viðburði á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti lokaávarp á Reykjavík Global Forum – heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu í dag. Í lokaávarpi sínu áréttaði forsætisráðherra mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu til að takast á við stærstu áskoranir samtímans, einkum loftslagsbreytingar, ójafnrétti og ójöfnuð.