08 maí 2015
Mælt fyrir breytingum á efnalögum
<p>Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, hefur mælt á Alþingi fyrir frumvarpi um breytingar á efnalögum en þær fela í sér færslu eftirlits með raf- og rafeindabúnaði frá Umhverfisstofnun til Mannvirkjastofnunar, innleiðingar á EES-gerðum auk þess sem skerpt er á tilteknum ákvæðum og orðalagi í lögunum.</p>