14 nóvember 2013
Verkefni flutt frá ráðuneyti
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mælti í gær fyrir
frumvarpi á Alþingi sem felur í sér flutning verkefna frá
innanríkisráðuneytinu til undirstofnana. Frumvarpið er liður í áformum
ráðherra að bæta þjónustu, auka skilvirkni og færa framkvæmd verkefna
nær almenningi.