29 október 2014
Fjallað um öryggismál og heilbrigðisvá á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, stýrði í dag fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Ebólu-faraldurinn, staða mála í Úkraínu, alþjóðleg öryggismál í ljósi þróunar í Evrópu og Mið-Austurlöndum og hagnýtt samstarf utanríkisþjónusta ríkjanna voru efst á dagskrá.