12 september 2012
Íslendingar taka þátt í leitar- og björgunaræfingu við Grænland
<p>Íslendingar taka um þessar mundir þátt í fjölþjóðlegri leitar- og björgunaræfingu við austurströnd Grænlands ásamt samstarfsaðilum frá Kanada, Noregi, Bandaríkjunum, Grænlandi, Færeyjum og Danmörku. Frá Íslandi taka þátt Landhelgisgæslan, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og fleiri aðilar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fylgist með æfingunni í Meistaravík í dag.</p>