25 nóvember 2020
Rafrænn viðskiptafundur Íslands og Eistlands á sviði stafrænnar stjórnsýslu
Möguleikar á starfrænum lausnum í opinberri þjónustu og nýjungar íslenskra og eistneskra fyrirtækja, einkum á sviði heilbrigðismála og í tengslum við Covid-19, voru í brennidepli á opnum rafrænum viðskiptafundi sem fram fór í morgun á milli Eistlands og Íslands. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, flutti þar erindi ásamt Urmas Reinsalu, utanríkisráðherra Eistlands.