16 júní 2021
Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á Tidewater-fundi
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, sat í dag fjarfund þróunarmálaráðherra aðildarríkja þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD DAC) . Margþættar áskoranir vegna heimsfaraldurs, lýðræði og mannréttindi var meðal þess sem hæst bar í umræðum ráðherranna.