19 apríl 2013
Vel sóttur fundur um síldardauða
<p>Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra fundaði í gær með heimamönnum í Grundarfirði og nágrenni um síldardauðann í Kolgrafafirði ásamt fulltrúum helstu stofnana sem að málinu hafa komið. Fyrir fundinn skoðaði hún aðstæður við bæinn Eiði í Kolgrafafirði og ræddi ástandið við ábúendur þar.</p>