07 desember 2007
Umhverfisráðherra ver andvirði jólakorta til góðgerðamála
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra afhenti í dag forsvarsmönnum Alnæmisbarna og Alnæmissamtakanna peningagjafir, hvora að andvirði 200.000 kr. Umhverfisráðherra ákvað að senda ekki út jólakort með kveðjum ráðherra og starfsfólks en verja andvirði kortanna þess í stað til góðgerðamála.