31 janúar 2023
Samningur um þróun sameiginlegrar innritunargáttar háskóla undirritaður
Samningur um þróun upplýsingakerfis fyrir umsóknir og innritun í íslenska háskóla var undirritaður af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Andra Heiðari Kristinssyni, framkvæmdastjóra Stafræns Íslands í dag.