30 janúar 2007
Jarðgangaleið yrði tveimur til þremur milljörðum dýrari
<p align=justify>Í nýjasta tölublaði Framkvæmdafrétta, fréttablaði Vegagerðarinnar, ber Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, saman kostnað við tvær leiðir fyrir nýbyggingu á kafla Vestfjarðavegar í Gufudalssveit. Segir hann jarðgangaleið munu verða tveimur til þremur milljörðum króna dýrari en fyrirhuguð leið um utanverðan Þorskafjörð og þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar.</p>