10 ágúst 2012
Innanríkisráðherraflutti ávarp í tengslum við opnun sýningar um kjarnorkuárásirnar á Hírósíma ogNagasaki
<p>Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ávarpaði síðdegis í gær gesti við athöfn í Listasafni Reykjavíkur, í tengslum við opnun fræðslu- og ljósmyndasýningar um kjarnorkusprengjurnar sem varpað var á Hírósíma og Nagasaki árið 1945 og afleiðingar þeirra. Sýningin er haldin í Borgarbókasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu og eru þar sýndir munir frá atburðunum, ljósmyndir og fræðsluefni.</p>