22 desember 2017
Aukin framlög til NPA og vegna sólarhringsmeðferðar fólks í öndunarvél
Ákveðið hefur verið að auka framlag til notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar um 70 m.kr., umfram það sem áður var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Er það í samræmi við eindreginn vilja félags og jafnréttisráðherra og velferðarnefndar Alþingis. Breytingatillaga þessa efnis var lögð fram við aðra umræðu um fjárlögin sem nú stendur yfir.