23 október 2019
Ráðherra skipar samráðsnefnd um fiskeldi
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samráðsnefnd um fiskeldi. Nefndinni ber að taka til umfjöllunar mál sem snerta fiskeldi, meðal annars að leggja mat á forsendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunnar byggist á.