29 maí 2006
Úthlutun úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna 2006
<p align="justify">Úthlutað hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal ráðstöfunarfénu, vaxtatekjum af höfuðstól, varið til að styrkja hópferðir Íslendinga til Noregs.</p>