29 nóvember 2007
Forstjóri Náttúrufræðistofnunar kosinn forseti Bernarsamningsins
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, var í dag kosinn forseti Bernarsamningsins á aðildarríkjafundi samningsins í Strasborg í Frakklandi. Bernarsamningurinn fjallar um verndun villtra plantna, dýra og lífsvæða í Evrópu og er einn af grundvallar samningum Evrópu á sviði umhverfisverndar.