28 desember 2012Sveitarfélög fá lengri frest til að skila fjárhagsáætlun
Ákveðið hefur verið að veita sveitarfélögum frest til 15. janúar næstkomandi til að skila fjárhagsáætlun fyrir næsta ár og þriggja ára áætlun sem nær til áranna 2014 til 2016. Hefur sveitarfélögum landsins verið tilkynnt um þessa ákvörðun innanríkisráðuneytisins.

28 desember 2012Stjórnvöld setja í fyrsta sinn fram stefnu í neytendamálum
Starfshópur um skipulag neytendamála sem innanríkisráðherra skipaði hefur skilað tillögum sínum. Leggur hópurinn meðal annars til að að stjórnvöld móti stefnu í neytendamálum sem sett verði fram sem þingsályktunartillaga og að ráðherra flytji Alþingi árlega skýrslu um stöðu neytendamála.…
28 desember 2012Ríkisstjórnin samþykkti viðbótarfjárveitingu vegna gildistöku barnalaga
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun viðbótarfjárveitingu vegna breytingar barnalaga sem samþykkt voru á Alþingi fyrir jólin og taka eiga gildi um áramót. Samþykkt var allt að 30 milljóna króna viðbótarfjárveiting á næsta ári. Heildarfjárveiting til að hrinda í framkvæmd breytingum á barnalögum verður því 60 milljónir króna.

28 desember 2012A-467/2012. Úrskurður frá 28. desember 2012.
Kærð afgreiðsla stjórnvalda á beiðni þar sem óskað var eftir upplýsingum um nýtt fyrirkomulag á byrjunaruppboðum hjá sýslumannsembættunum. Afgreiðsla máls hjá stjórnvaldi. Innanríkisráðuneytinu bar að taka fyrir á ný til lögmætrar afgreiðslu beiðni kæranda um aðgang að gögnum. Vísað var frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæru á hendur Sýslumanninum í Bolungarvík. Gögn þegar verið afhent.

28 desember 2012A-468/2012. Úrskurður frá 28. desember 2012Kærð var synjun kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa á beiðni um aðgang að tilgreindum gögnum í máli kærunefndarinnar nr. M-36/2011. Um rétt kæranda til aðgangs að umbeðnum gögnum hjá kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa fer eftir 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kæru vísað frá.
28 desember 2012A-469/2012. Úrskurður frá 28. desember 2012
Kærð var synjun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á beiðni kæranda um aðgang að „Samantekt á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008 til 2011.“ Ekki varð séð að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefði með ákvörðun sinni 16. september 2012, afgreitt beiðni kæranda á réttum lagagrundvelli.…
28 desember 2012Breytingar á gjaldskrám vegna heilbrigðisþjónustu um áramót
Sjúkratryggingar Íslands hafa tekið saman upplýsingar um breytingar sem verða á gjaldskrám vegna heilbrigðisþjónustu 1. janúar næstkomandi. Komugjöld á heilsugæslustöðvar og gjöld fyrir vitjanir heilsugæslulækna verða óbreytt. Greiðsluþátttaka einstaklinga í kostnaði vegna lyfja hækkar um 3,9%.

28 desember 2012Norski olíu- og orkumálaráðherrann heimsækir Ísland
Norski olíu- og orkumálaráðherrann Ola Borten Moe verður hér á landi 3ja og 4. janúar í tengslum við undirritun sérleyfa fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis en norska ríkisolíufélagið Petoro verður þátttakandi í báðum leyfunum. Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra mun funda með norska kollega sínum.

27 desember 2012Lokið fjárhagslegri endurskipulagningu Sveitarfélagsins Álftaness
Lokið er fjárhagslegri endurskipulagningu Sveitarfélagsins Álftaness og leysti innanríkisráðherra í dag frá störfum fjárhaldsstjórn sem skipuð var til að annast verkefnið í samráði við bæjarstjórnina og innanríkisráðuneytið.…
27 desember 2012Móttaka flóttafólks frá Afganistan
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Kristján Sturluson, formaður Rauða kross Íslands, undirrituðu í dag samning milli velferðarráðuneytisins og Rauða krossins  um móttöku og þjónustu við flóttafólk frá Afganistan.

27 desember 2012Friðun húsa og hafnarmannvirkja
Ákveðið að friða Tryggvaskála, Seyðisfjarðarkirkju, mannvirki við Gömlu höfnina í Reykjavík, Skálholtskirkju og ytra byrði Skálholtsskóla ásamt nánasta umhverfi.

27 desember 2012Lækkun tryggingagjalds um 0,1%
Tryggingagjaldshlutfall lækkar um 0,1 prósentustig milli ára og verður 7,69% á árinu 2013.