08 janúar 2015
Opnuðu formlega flughermi Icelandair
<p>Icelandair tók í gær formlega í notkun flughermi í nýju húsnæði fyrirtækisins í Hafnarfirði. Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair og Hilmar B. Baldursson, flugrekstrarstjóri félagsins klipptu á borða og opnuðu þannig flugherminn með táknrænum hætti.</p>