05 júní 2007
REACH hefur gengið í gildi innan Evrópusambandsins
REACH, ný reglugerð Evrópusambandsins um skráningu, mat, leyfisveitingar og takmarkanir á notkun efna gekk nýverið í gildi. Í umhverfisráðuneytinu er nú unnið að gerð lagafrumvarps sem byggir á REACH reglugerðinni og er stefnt að því að ljúka þeirri vinnu síðar á þessu ári. Umhverfisstofnun hefur sett upp upplýsingasíðu um REACH þar sem fjallað er um áhrif reglugerðarinnar.