20 júlí 2011
Ríkisstjórnin þakkar fyrir skjót og góð viðbrögð vegna hlaupsins í Múlakvísl
<p>Ríkisstjórn Íslands sendir Vegagerðinni, Almannavörnum ríkisins, lögreglunni, björgunarsveitum, vísindamönnum, sveitarstjórnum á viðkomandi svæði sem og öllum þeim fjölmörgu aðilum öðrum sem komu að aðgerðum vegna hlaupsins í Múlakvísl, kærar þakkir fyrir skjótar og markvissar aðgerðir til að tryggja öryggi vegfarenda og koma á vegsambandi yfir fljótið á ný.</p>