18 apríl 2018
Norrænir utanríkisráðherrar funduðu í Stokkhólmi
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fund utanríkisráðherra Norðurlanda sem haldinn var í Stokkhólmi í dag. Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins og helstu málefni á alþjóðavettvangi, þar á meðal stríðið í Sýrlandi, voru á meðal umræðuefna á fundinum.