04 ágúst 2020
Sr. Sigfús Kristjánsson sendiráðsprestur
ágúst 2020 tók sr. Sigfús Kristjánsson til starfa sem sendiráðsprestur í sendiráðinu í Kaupmannahöfn, en hann gengur til liðs við íslenska söfnuðinn í Danmörku. Þar með er staða prests Íslendinga í Danmörku endurvakin og er það mikið gleðiefni fyrir söfnuðinn sem hefur haldið uppi kraftmiklu starfi. Undanfarin ár hefur sr. Ágúst Einarsson, prestur Íslendinga í Svíþjóð, þjónað söfnuðinum í Danmörku.…