19 desember 2014
Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Veiðikortasjóði
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til vöktunar og rannsókna á stofnum villtra dýra sem heimilt er að veiða. Skriflegar umsóknir skulu berast ráðuneytinu, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík og með tölvupósti á [email protected], merktar Veiðikortasjóður 2014, fyrir mánudaginn 19. janúar 2014.