08 maí 2018
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ávarpaði Arctic Circle Forum í Þórshöfn í Færeyjum
„Efnahagsuppbygging og umhverfisvernd eru engar andstæður,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í ávarpi sínu í opnunarathöfn Arctic Circle Forum í Þórshöfn í Færeyjum í dag. „Þvert á móti, verður þetta tvennt að fara saman svo að tryggja megi sjálfbæra þróun og lífsafkomu fólks á norðurslóðum.“