19 júlí 2011
Vinnuhópur ICAO fundar á Íslandi um notkun flugrita
<p>Vinnuhópur á vegum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAO, sem fjallar um notkun og rannsóknir á flugritum í tengslum við flugslys og alvarleg flugatvik, Flight Recorder Panel, heldur fund sinn í innanríkisráðuneytinu í dag og næstu daga. Verkefni hópsins er að fjalla um hvernig nýta má betur flugrita og hvort og hvaða umbætur eru nauðsynlegar á gerð þeirra.</p>