11 september 2012
Leifar af lyfjum og hreinlætisvörum greinast í skólpi
<p>Ný rannsókn sýnir að lyfjaleifar og leifar af hreinlætisvörum, s.s. sápum, hársnyrtivörum og kremum, mælast í skólpi á Íslandi. Magn lyfja og hreinlætisvöru var þó í flestum tilfellum minna í skólpsýnum sem tekin voru hér á landi en í sýnum frá öðrum Norðurlöndum.</p>