08 september 2020
Matarbúðin Nándin hlýtur Bláskelina 2020
Matarbúðin Nándin hlaut í dag Bláskelina, viðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir framúrskarandi plastlausa lausn og prýðilegt fordæmi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, afhenti Kolbeini Lárusi Sigurðssyni hjá Matarbúðinni viðurkenninguna í beinni útsendingu á vef Umhverfisstofnunar.