09 febrúar 2021
Ráðherra úthlutar 85 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 85 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 174 verkefna og rannsókna sem m.a. hafa að markmiði að efla geðheilsu barna og fullorðinna. Einnig voru veittir styrkir til verkefna tengdum áfengis- vímu- og tóbaksvörnum, næringu, hreyfingu og kynheilbrigði. Hæstu styrkirnir, 2,5 milljónir króna renna til þriggja verkefna.…