26 ágúst 2015
Umsjónarsamningar með náttúruvættum í Reykjavík undirritaðir
<p>Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur staðfest umsjónarsamninga þriggja náttúruvætta innan marka Reykjavíkur. Um er að ræða friðlýstu svæðin Fossvogsbakka, Háubakka og Laugarás en með samningunum felur Umhverfisstofnun Reykjavíkurborg að hafa með höndum umsjón og rekstur svæðanna.</p>