24 febrúar 2005
Umhverfisráðherra fundar með friðarverðlaunahafa Nóbels dr. Wangari Maathai
Umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, átti í gær fund með dr. Wangari Maathai, aðstoðarráðherra umhverfis- og auðlindamála í Kenýa, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2004 fyrir störf sín að friðar- og umhverfismálum.