26 apríl 2017
Harðnandi átök í Afganistan
<p>Á föstudaginn var, þann 21. apríl, frömdu Talíbanar sína mannskæðustu árás gegn afganska hernum frá upphafi stríðsins árið 2001. Yfir 140 hermenn voru stráfelldir í óvæntri innrás á herstöðina Shaheen í norðurhluta landsins, þar sem þeir ýmist sátu yfir hádegismat eða bænastund, óvopnaðir.</p>