25 nóvember 2019
Þórður Ægir afhendir trúnaðarbréf hjá Efnavopnastofnuninni í Haag
Þórður Ægir Óskarsson afhenti Fernando Arias, aðalframkvæmdastjóra Efnavopnastofnunarinnar í Haag, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnuninni. Efnavopnastofnunin sér um framkvæmd á samningi um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna.