14 ágúst 2006
Viðbótarframlag til mannúðar- og neyðaraðstoðar í Líbanon
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita viðbótarframlag til mannúðar- og neyðaraðstoðar í Líbanon sem nemur 14,2 milljónum króna (200.000 Bandaríkjadölum), en utanríkisráðherra veitti í lok júlí sl. 10 milljónum króna til aðstoðar íbúum Líbanons vegna stríðsátakanna þar í landi.