12 september 2007Opinber heimsókn forsætisráðherra til Írlands<p></p> <p>Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fer í opinbera heimsókn til Írlands dagana 12. - 14. september n.k.</p>
12 september 2007Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansiUmsóknarfrestur er til 30. september næstkomandi.
12 september 2007Barnamenningarsjóður 2007Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 15. október 2007.
12 september 2007Skipun Þjóðleikhúsráðs 2007- 2011Menntamálaráðherra hefur skipað Þjóðleikhúsráð, skipunin gildir frá 15. september 2007 til 14. september 2011.
12 september 2007Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar<p>Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun boða til málstofu föstudaginn 14. september í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar. Málþingið fer fram á Hótel Loftleiðum og stendur frá kl. 9:00 til 12:00. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.</p>
12 september 2007Ný verkefnastjórn vegna rammaáætlunar um verndun og nýtingu náttúrusvæðaÞórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hafa skipað verkefnastjórn sem falið hefur verið að undirbúa rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Verkefnastjórnin á að ljúka störfum fyrir 1. júlí 2009. Þetta verkefni er mikilvægur hluti af því markmiði ríkisstjórnarinnar að skapa sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða.
12 september 2007Fyrirkomulag veiða á rjúpu haustið 2007Umhverfisráðherra hefur ákveðið að rjúpnaveiðitímabilið í ár standi frá 1. til 30. nóvember. Mælt er með því að veiddir verði að hámarki 38.000 fuglar. Áfram mun ríkja sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2006.